Hægt er að úthluta (áframsenda) ábendingar á þrjá vegu: Innan sveitarfélagsins, á aðra deild/svið, senda á skilgreindan utanaðkomandi aðila eða senda á óskilgreindan aðila
Innan sveitarfélagsins
Til að senda ábendingu áfram innan sveitarfélagsins þarf einungis að haka við ákveðna deild/svið og svo vista ábendinguna. Þar með mun hún berast hinni nýju deild/sviði.
Áframsenda á utanaðkomandi
Hér er hægt að velja forskráða utanaðkomandi aðila svo sem Vegagerðina, Veitur o.þ.h. Forskráning á utanaðkomandi aðilum er gerð af Þjónustustjóra.
Ef valið er að senda á utanaðkomandi aðila er svo litið á að ábendingunni sé formlega lokið hjá sveitarfélaginu og henni því lokað. Tölvupóstur því samhliða er sendur út á bæði utanaðkomandi aðilann og til þess sem sendi inn ábendinguna.
Áframsenda á utanaðkomandi - frjáls tölvupóstur
Einnig er hægt að senda á aðila sem ekki er forskráður og er þá tölvupóstfangið sett hér.
Ahugið að bæði er hægt að velja að senda á forskráða og óforskráða á sama tíma.